Mýrargata-Geirsgata. Tillaga um að falla frá stokkalausn. Gatnamót Geirsgötu og Kalkofnsvegar.
Til kynningar eru nú drög að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, sbr. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga og laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana, er varðar breytt skipulag Mýrargötu og Geirsgötu.
Drög að aðalskipulagsbreytingu var kynnt á íbúafundi þann 16. maí sl. Hér má nálgast drög að aðalskipulagsbreytingu og drög að umhverfisskýrslu.