Munum myrkvun fyrir móður jörð á laugardagskvöld
Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka þátt í Jarðarstund 23. mars klukkan 20.30 til 21.30 með því að kveikja ekki rafmagnsljósin heldur njóta stundarinnar og hugleiða hvað þeir geti lagt af mörkum í umhverfismálum.
Jarðarstundin (Earth hour) er árlegum viðburður í 150 löndum og er hún haldin í þágu umhverfismála. Reykjavíkurborg tók fyrst þátt í henni í fyrra ásamt Samtökum Lífrænna neytenda og Grænum apríl. Að þessu sinni tekur borgin þátt með því að kveikja ekki götulýsingu en kl. 21.30.
Hægt verður að njóta myrkurs heima fyrir eða á Ingólfstorgi undir ljúfum tónum Ólafar Arnalds. Vonir standa til þess að sem flestir taki þátt í þessu framtaki, slökkt verði á byggingum og götuljósum þar sem því er við komið.