Mótað í snjó í Grasagarðinum á Vetrarhátíð - snjór sóttur í Bláfjöll
Mannlíf Menning og listir
Grasagarðurinn tekur þátt í Vetrarhátíð í Reykjavík og Safnanótt í samstarfi við Listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Næstu daga mun finnski umhverfislistamaðurinn Timo Jokela vinna að gerð snjóskúlptúrs í Grasagarðinum og geta gestir og gangandi fylgst með framvindunni og kynnt sér vinnuferlið.
Vegna snjóleysis í borginni í vetur verður að grípa til þess ráðs að flytja snjó úr Bláfjöllum svo Timo geti unnið verkið. Snjórinn verður sóttur í fjöllin á morgun þriðjudag og á miðvikudag hefst mótun verksins í Grasagarðinum. Verkið verður tilbúið á Safnanótt, föstudaginn 8. febrúar kl. 19 - 21, og verður áfram til sýnis í garðinum eins lengi og það stendur.
Timo Jokela starfar sem prófessor við listkennsludeild Háskóla Lapplands í Rovaniemi. Í verkum sínum vinnur hann með náttúruleg efni s.s. tré, snjó og ís, gjarnan út frá menningararfleið þeirra staða þar sem verkin eru sýnd.
Dagana 6.-18. febrúar verða í gönguás Ráðhúss Reykjavíkur sýndar ljósmyndir af verkum Timo Jokela sem hann hefur unnið víða á norrænum slóðum.
Á Safnanótt verður einnig boðið upp á fleiri skemmtilega viðburði og upplifanir í Grasagarðinum í boði nemenda Listkennsludeildar Listaháskóla Íslands undir yfirskriftinni Upplifðu magnað myrkur. Auk þess munu nágrannar okkar í Húsdýragarðinum bjóða upp á heimsókn til dýranna í myrkrinu á Safnanótt.
Sjá nánar dagskrá Vetrarhátíðar á www.vetrarhatid.is.