Mótað í sand - Smiðja fyrir krakka (9 ára+), Hafnarhús, sunnudag 24. febrúar kl. 14 - 16

Skóli og frístund Menning og listir

""

Listasafn Reykjavíkur býður upp á opna listsmiðju „Mótað í sand“  fyrir 9 ára og eldri börn í tengslum við sýningu Roberts Smithsons: Rýnt í landslag. Á sýningunni er lögð áhersla á verkið Brotin hring/Spíralhæð sem Smithson gerði í Emmen í Hollandi árið 1971.  Verkið er eina umhverfislistarverk Smithson í Evrópu.

Í smiðjunni „Mótað í sand“ verða verk Roberts Smithsons notuð sem innblástur fyrir þátttakendur.  Byrjað verður á stuttri yfirferð um sýninguna þar sem valin verk verða skoðuð í tengslum við þróun hugmynda frá skissu að fullkláruðu verki.  Sköpunargleði þátttakanda er virkjuð með umræðu og vangaveltum um staðsetningu listaverka og efnisnotkun um spíralformið.  Í öðrum hluta smiðjunnar hefur verið sett upp vinnustofa þar sem hægt er að útfæra hugmyndir í sand.

Leiðbeinendur eru Hugrún Þorsteinsdóttir arkitekt og Ásdís Spanó, myndlistarmaður.  Þær hafa starfað saman að listkennslu fyrir börn og eru báðar menntaðir listgreinakennarar.

Frítt er fyrir börn undir 18 ára aldri og handhafa Menningarkortsins.