Mikill áhuga á aðalskipulagi Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg kynnti aðalskipulag borgarinnar fyrir fullu húsi í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Skipulagið er sérstakt að því leyti að um það er þverpólitísk samstaða og unnið af fulltrúum allra flokka. Þétting byggðar er mikilvæg og markmið skipulagsins er að hverfi verði sjálfbærari, mannvænni og fjölbreyttari. Með þéttari byggð dregur almennt úr vegalengdum, samgöngukostnaði og umhverfisáhrifum samgangna. Verkefni næstu áratuga er að fullbyggja Borgina við Sundin og því er uppbyggingu nýrra hverfa í útjaðri slegið á frest.

Græna borgin er eitt af þemum nýs aðalskipulags og er gert ráð fyrir að 40% lands verði opin svæði innan þéttbýlis Reykjavíkur ætluð til útivistar, afþreyingar og leikja. Reykjavíkurborg hefur mikinn metnað til að verða grænni og vistvænni og þar gegna samgöngur mikilvægu hlutverki. Stefnt er að því að hlutdeild almenningssamgangna í ferðum til og frá vinnu vaxi úr 4% í 12% og hlutdeild gangandi og hjólandi vaxi úr 21% í 30%.

Ávarp á fundinum fluttu Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og Páll Hjaltason, formaður umhverfis- og skipulagsráðs. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi skýrðu sín sjónarmið en að því loknu kynntu Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri aðalskipulags og Björn Axelsson, skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, afgreiðsluferli skipulagsins og hvernig því yrði framfylgt.  Margir tóku þátt í umræðum að erindum loknum og færri komust að en vildu. Fólki var Vatnsmýrin, framtíð flugvallarins og samgöngur efst í huga.

Mikilvægt er fyrir borgarbúa að þekkja þær megináherslur sem birtast í aðalskipulaginu því þar má finna framtíðarsýn sem kemur öllum Reykvíkingum við. Hægt er að kynna sér skipulagið á vef borgarinnar.

Nýtt aðalskipulag.