Mikil ánægja foreldra með leikskólastarf í borginni

Skóli og frístund

""

Niðurstöður viðhorfskönnunar til leikskólastarfs Reykjavík sýnir mikla ánægju foreldra með starf skólanna. Könnunin er sú fjórða sem gerð er frá 2007 þannig að ákveðinn kjarni spurninga er endurtekinn og því er áhugavert að skoða breytingar milli mælinga. 

Foreldra telja sem fyrr að börnum þeirra líði mjög vel í leikskólanum og að þau séu ánægð með veru sína þar. Þessar tölur eru hæstu ánægjumælingarnar sem koma fram í könnuninni um viðhorf foreldra til leikskóla eða 97%. Þessar mælingar eru mjög stöðugar og eru nær óbreyttar frá fyrri könnunum. Eins er ánægja með viðmót deildarstjóra í samskiptum við foreldra og börn eins og í fyrri könnunum, eða 90% og allir þættir könnunarinnar sem lúta að líðan barnsins og viðmóti starfsfólks, umhyggju þess fyrir barninu og öryggi barnsins koma mjög vel út, eða á bilinu 94-97%. Ánægja með viðfangsefni leikskólans er einnig mikil, en 90% foreldra eru ánægðir með þann þátt. Heildaránægja foreldra dalar á milli ára úr 95% í 93% en ánægja foreldra leikskólabarna er þó enn langmest sé litið til annarra viðhorfskannana foreldra á skóla- og frístundasviði.

Fjölmargar nýjar spurningar voru í viðhorfskönnun leikskólanna 2013 en helst ber að nefna sérstaka könnun til foreldra um aðlögun. Um 83% fannst aðlögunin vel undirbúin og 90% fannst aðlögun barnsins ganga vel

Þegar litið er á könnunina í heild er ástæða til að skoða betur hvaða úrbóta er þörf þegar kemur að upplýsingagjöf til foreldra og þá sérstaklega hvernig hægt er að efla heimasíður leikskólanna sem upplýsinga- og samskiptavettvang. Þá þarf að taka til vandlegrar skoðunar að ánægja foreldra með lóð og húsnæði minnkar meira en ásættanlegt er í mörgum leikskólum.