ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Mikil aðsókn í Breiðholtslaug á Sundlauganótt
Borgarbúar kunnu vel að meta miðnæturopnun Breiðholtslaugar á Vetrarhátið. Um 400 manns sóttu laugina og nutu frábærra tónlistar ungra listamanna í hljómsveitinni White Signal og sigurvegara í söngvakeppni Breiðholts ásamt því að sjá flotta takta danshópsins Swaggerific.
Þá gátu gestir tekið þátt í Aqua Sumba, Jóga og gongslökun og var þátttaka þeirra afar góð.