Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar er haldinn hátíðlegur í dag, 11. maí. Setningarathöfn fjölmenningardagsins hófst við Hallgrímskirkju kl. 13 en að henni lokinni fór fjölmenningarskrúðganga af stað áleiðis til Ráðhúss Reykjavíkur. Fjöldi fólks tók þátt í göngunni og réð litagleðin ríkjum en margir þátttakendur klæddust fallegum þjóðbúningum hinna ýmsu landa. Markmiðið með hátíðahöldunum að fagna fjölbreyttri menningu borgarsamfélagsins. Hátíðin er nú haldin í fimmta sinn og má með sanni segja að hún hafi öðlast sess í hugum borgarbúa enda setur hún skemmtilegan blæ á borgarlífið.
Fjölbreytt skemmtidagskrá er í boði í Ráðhúsinu og Tjarnarbíói. Í Ráðhúsinu er fjölþjóðlegur markaður en þar geta gestir og gangandi kynnt sér menningu hinna ýmsu þjóðlanda og á boðstólum eru þjóðlegir réttir, listmunir og annar varningur.
Í Tjarnarbíói er boðið upp á fjölbreytt skemmtiatriði. Meðal atriða eru Lalli töframaður, Festejo dans frá Perú, litháískur kórsöngur, Capoeira, afró brasilísk bardagalist og Mamandi trommuhópur frá Gíneu. Að lokinni skemmtidagskrá verður ljóðaupplestur á ýmsum tungumálum og að því loknu stuttmyndasýning nemenda í Kvikmyndaskóla Íslands.
Í kvöld klukkan 20 verða svo tónleikar í Hafnarhúsinu þar sem fram kemur hljómsveitin The Bangoura Band ásamt listamönnum frá Ghana.
Allir ættu að geta fundið sér atriði við hæfi.
Gleðilegan Fjölmenningardag!