Þriðjudaginn 9. júlí verður boðið upp á miðsumar-jóga í Viðey. Gengið verður rösklega um eyjuna, gerðar styrkjandi jóga- og öndunaræfingar og léttar teyjur og farið í slökun undir berum himni.
Jóga úti í náttúrunni gefur einstaka upplifun. Jóga hjálpar okkur að öðlast innri frið og jafnvægi og hvergi er betra að sækja innblástur til þess en einmitt úti í fersku lofti í nálægð við náttúruna.
Gangan tekur um eina og hálfa til tvær klukkustundir og hefst kl. 19.30. Ferjan fer frá Skarfabakka 18.15 og 19.15. Göngunni lýkur við Viðeyjarstofu þar sem gestir geta keypt sér léttar og hollar veitingar áður en haldið er af stað heim um tíuleytið.
Gestir eru beðnir um að koma klæddir eftir veðri og í góðum skóm. Gott er að hafa með sér vatnsbrúsa en ekki þarf að taka með sér jógadýnur. Allir eru velkomnir í jóga og engin nauðsyn að hafa stundað jóga áður.
Eva Rún Þorgeirsdóttir jógakennari leiðir gönguna. Hún hefur kennt bæði börnum og fullorðnum jóga síðastliðin ár, bæði námskeið og opna tíma, m.a. hjá Barnaskóla Hjallastefnunnar og hjá Baðhúsinu.
Gjald í ferjuna fram og til baka er kr. 1100,- fyrir fullorðna og kr. 550,- fyrir börn 7 - 15 ára í fylgd fullorðinna. Frítt fyrir 6 ára og yngri. Leiðsögnin er ókeypis og öllum opin.
Handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og í Viðeyjarstofu.
Vertu með og upplifðu kyrrðina og orku náttúrunnar í Viðey á hressandi og endurnærandi hátt!