Miðborgin og Vatnsmýrin vinsælust

Framkvæmdir

""

Miðbærinn og Vatnsmýrin reyndust vinsælust af mögulegum nýbyggingarsvæðum í Reykjavík.  Þetta kemur fram í nýrri bústetuóskakönnun sem unnin var fyrir Reykjavíkurborg og rannsóknarverkefnið Betri borgarbragur. Eldri hverfin í Reykjavík halda annars stöðu sinni og eru vinsælust þegar spurt er um búsetuóskir fólks. Flestir svarendur, sérstaklega þeir yngri, vilja helst búa í vesturhluta borgarinnar, miðbæ og nærliggjandi hverfum. Einnig var athyglisvert að um helmingur svarenda bjóst við að flytja og skipta um húsnæði innan fimm ára. 87% þeirra gerði ráð fyrir að flytja innan borgarinnar þar af um helmingur innan sama hverfis.

Viðhorfskönnun  á húsnæðis- og búsetuóskum borgarbúa 2013 var unnin fyrir rannsóknarhópinn Betri borgarbragur og umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar af Land-ráði sf í samvinnu við MMR. Þetta er þriðja könnunin á húsnæðis- og búsetuóskum sem Land-ráð sf vinnur fyrir borgaryfirvöld. Þær fyrri fóru fram 2003 og 2007. Þessi könnun var gerð 14. - 25. mars 2013 og sá MMR um frumvinnslu gagna. Hér var um netkönnun (spurningavagn) að ræða og tóku 1.421 borgarbúar þátt í könnuninni. Gögnin voru greind með tilliti til aldurs, kyns og búsetu eftir 10 hverfum í Reykjavík. Bjarni Reynarsson hjá Land-ráði hefur gefið út skýrslu um niðurstöðurnar og verða nokkrar áhugaverðar niðurstöður nefndar hér.

Flestir vilja búa í blönduðu hverfi

76% búa í eigin húsnæði árið 2013 en árið 2007 var þessi tala 80%. Margir svarendur segjast jafnframt leita eftir heldur minna húsnæði en þeir búa núna í en um 14% eru leigjendur, aðallega yngra fólk. Um fjórðungur leigenda býst við að leita áfram eftir leiguhúsnæði og þrír fjórðu hlutar að kaupa íbúð. Flestar leiguíbúðir eru í miðbæ og  Grafarholti – Úlfarsárdal.

Eignarhald á húsnæði vex með aldrinum en mjög hátt hlutfall ungs fólks á aldrinum 18-29 ára býr í foreldrahúsum eða 28%. Flesta dreymir um einbýlishús, en ef tekið er tillit til efnahags telur rúmlega helmingur svarenda að þeir muni flytja í íbúð í fjölbýlishúsi. Flestir aðlaga húsnæðisóskir eftir breyttum fjölskylduhögum. Flestir eða 33% virðast vilja búa hverfi þar sem blöndun er milli lágreistra fjölbýlishúsa, raðhúsa og einbýlishúsa. 13% völdu útivistarhverfi eins og Grafarholt og Úlfarsárdal.

Nærumhverfi

Flestir vilja að næsta íbúð sem þeir kaupi hafi annað hvort góðar svalir eða aðgang að garði. Helstu ókostir núverandi hverfis töldu flestir vera of mikla bílaumferð, skort á verslun og þjónustu og slakt almenningsvagnakerfi. Þetta mætti bæta auk löggæslu, stígakerfi og leik og útivistaraðstöðu. Segja má að svarendur telji að helst vanti meira af því sem er vinsælast: eða blönduð hverfi með lægri fjölbýlishúsum, raðhúsum og einbýlishúsum líkt og í Fossvoginum.

Nýtt aðalskipulag gerir ráð fyrir lágreistri byggð og leggur áherslu á styttri ferðatíma en áður, betri nýtingu veitukerfa og líflegt mannlíf svo dæmi sé tekið. Hús verða t.a.m. ekki hærri en fimm hæðir innan Hringbrautar í Reykjavík enda mun svæðið njóta sérstakrar hverfisverndar. 26% svarenda eru hlynntir þéttingu í íbúðabyggð og 50% eru hlynntir íbúðabyggð á eldri atvinnusvæðum.

Verslun og þjónusta

Um 58% svarenda segist sækja meirihluta daglegrar verslunar innan hverfis en mikilvægasta þjónusta innan hverfis er lágvöruverðs matvöruverslun, þar af  70% svarenda í miðborg, Vesturbæ, Grafarvogi og Árbæ. Flestir vilja aukna verslun í hverfið sitt, löggæslu, betri strætó, og meira framboð af kaffi- og menningarstöðum, auk betri göngu- og hjólreiðastíga svo dæmi sé tekið.

Um 70% svarenda sögðust hafa gert helstu jólagjafainnkaupin í Reykjavík, þar af 31% í Kringlunni og 21% í miðborginni en um 11% versluðu í útlöndum. Helmingur svarenda var hlynntir veitingarekstri með vínveitingaleyfi í íbúðahverfum og svipað hlutfall voru hlynnt því að þrifaleg atvinnustarfsemi væri innan íbúðasvæða.

Margt fleira áhugavert birtist í þessari könnun sem sagt er frá í blaðinu Borgarsýn sem umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar gefur út í þessari viku.