Hátt í fjögur hundruð grunnskólanemar unnu að þeim áttatíu myndum sem tóku þátt í Töku 2013 að þessu sinni. Hátíðin var haldin í Bíó Paradís miðvikudaginn 8. maí og var þétt setinn bekkurinn á þessari elstu kvikmyndahátíð landsins sem nú var haldin í 32. sinn. Stuttmyndin Svaðilför úr Háteigsskóla og myndin Mrs. Miller úr Breiðagerðisskóla fóru með sigur af hólmi í flokki leikinna stuttmynda.
Athygli vakti hversu margar leiknar stuttmyndir kepptu í flokki unglinga og eins hve margar myndir voru vel gerðar tæknilega. Það sem þær áttu allar sameiginlegt var að þær endurspegluðu mikinn áhuga barna og unglinga á kvikmyndamiðlinum, hugmyndaauðgi og svellandi sköpunargleði.
Keppt var í flokkum stuttmynda, heimildamynda, hreyfimynda og tónlistarmynda og tvískipt eftir aldursflokkum.
Þær myndir sem fengu hið eftirsótta Klapptré í verðlaun voru:
Leiknar stuttmyndir eldri flokki:
Svaðilför eftir Gunnar, Birnu, Þorbjörgu og Huga úr Háteigsskóla.
Tónlistarmynd eldri fl.
Tónlist í Réttó eftir þá Dag Örn Hilmarsson, Guðfinn Geirdal og Lárus Óla Pétursson
Hreyfimynd eldri fl.
Stop Motion eftir þá Helga Hannes Atlason, Jökull Þorra Sverrisson og Viktor Huga Henttinen í Réttarholtsskóla.
Heimildarmynd í eldri flokki.
Birta eftir Sóleyju Önnu Benónýsdóttur í Austurbæjarskóla
Stuttmynd yngri:
Mrs. Miller eftir Unu Mist, Elínu Björg, Heklu Sól, Karólínu og Helgu Björg í Breiðagerðisskóla.
Heimild yngri flokki:
Eineltisrapp eftir Ásgeir Beintein Árnason í Vesturbæjarskóla.
Hreyfimynd yngri fl.
Endurheimt Frakklands eftir Guðjón Þór Jósefsson í Laugalækjarskóli –
Heimildarmynd yngri fl.
Saga Sæmundarskóla eftir Bergdísi Bjarnadóttur, Elísabetu Birtu Eggertsdóttur, Rannveigu Klöru Guðmundsdóttur og Þorstein Magnússon í Sæmundarskóla.