Menntamálaráðherra gestur skóla- og frístundaráðs

Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkur bauð Illuga Gunnarssyni, ráðherra menningar- og menntamála, á sinn fund í dag til að ræða þau mál í skóla- og frístundastarfi sem efst eru á baugi, svo sem niðurstöður nýrrar PISA-könnunar, læsi barna og ungmenna og innleiðingu nýrra  aðalnámskráa.

Borgar- og varaborgarfulltrúar, áheyrnarfulltrúar skólastjórnenda, starfsfólks og foreldra sem og sérfræðingar borgarinnar lýstu sýn sinni á stöðu og framtíð skóla- og frístundastarfs og spurðu ráðherra út í margs konar álitamál sem tengjast framtíðarskipan menntamála.

Frjóar umræður urðu á fundinum og lýsti ráðherra yfir ánægju sinni með að fá tækifæri til að hitta kjörna fulltrúa og aðra sem mótuðu stefnuna í höfuðborginni í skóla- og frístundamálum. Samstaða myndaðist um að skóla- og frístundaráð myndi bjóða ráðherra á hverju ári til slíks samtals.

Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, fagnaði líka þessu tækifæri til að eiga milliliðalaust samtal við ráðherra og að fulltrúar foreldra, skólastjórnenda og starfsfólks fengju tækifæri til að viðra skoðanir sínar á ýmsum breytingum sem hann hefur boðað. Fundurinn hafi verið fræðandi og uppbyggilegur og ráðsfulltrúum gefist tækifæri til að rýna til gagns og koma fram með ýmsar ábendingar. 

Meðal þess sem rætt var um á fundinum var læsi á báðum fyrstu skólastigunum, niðurstöður PISA, mikilvægi leikskólans sem upphaf náms og læsis, námsmat, menntun kennara, mikilvægi frístundastarfs fyrir börn og ungmenni, hlutverk og ábyrgð foreldra, skóla án aðgreiningar, talþjálfun og fjölbreyttari námsgögn.

Í nýrri Pisakönnun komu reykvískir nemendur einna best út í stærðfræði með 504 stiga meðaltal sem er rétt fyrir ofan meðaltal OECD. Þrátt fyrir afturför í stærðfræði, sé miðað við árið 2003, er niðurstaðan fyrir Reykjavík 2012 sú sama og árið 2006 og litlu lægri en árið 2009. Þróun í lesskilningi er með svipuðum hætti þar sem besta niðurstaða reykvískra nemenda var árið 2000. Meðaltal lesskilnings hjá nemendum í Reykjavík árið 2012 er 491 stig sem er rétt undir meðaltali OECD. Í náttúrufræði varð ekki marktæk breyting hjá reykvískum nemendum milli 2006 og 2012 en niðurstöður eru nokkuð undir meðaltali OECD. Ánægjulegar niðurstöður PISA um skólabrag og líðan íslenskra nemenda í grunnskólanum eru í takti við reglulegar mælingar á líðan og virkni nemenda sem fram fara í Reykjavík.