Afmælis Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna verður fagnað í aðalsafni Borgarbókasafnsins, Tryggvagötu 15, sunnudaginn 24. nóvember kl. 15.00. Þá verður haldið menningarmót - fljúgandi teppi þar sem minnt verður á réttindi barna og persónulegir menningarheimar barna gerðir sýnilegir á skemmtilegan hátt.
Dagskrá:
Kynning á Barnasáttmálanum, upplestur úr barnabók um réttindi barna í umsjón Ungmennaráðs UNICEF.
Menningarmót – Fljúgandi teppi, hvað skiptir mestu máli í þínu lífi? Komdu með hluti, s.s.ljósmyndir, bækur, teikningar eða annað sem tengist lífi þínu. Fáðu borð hjá okkur og segðu
öðrum frá. Börnum er einnig velkomið að vera með atriði, s.s. dans, söng eða eitthvað annað skapandi.
Skráning: kristin.r.vilhjalmsdottir@reykjavik.is
Sýning á listaverkum barna frá frístundaheimilum Kamps sem tengjast Barnasáttmálanum.
Um þessar mundir eru 24 ár frá því að Barnasáttmálinn var samþykktur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Á Íslandi var hann lögfestur árið 2012.
Dagskráin í Borgarbókasafninu er í samstarfi við Samtökin Móðurmál, UNICEF og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.