Sæluostar úr sveitinni, Svandís Kandís, Saltverk, Sandholt, Bergsson mathús og Búrið eru meðal ótal rekstraraðila sem taka þátt í matarmarkaði á vegum umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar. Markaðstorgið verður á Lækjartorgi alla laugardaga í júlí frá 11.00 til 16.00. Torgið mun ilma af ýmsu góðgæti frá ólíkum aðilum en má þar nefna brauð, sætabrauð, ávexti, grænmeti, osta, ólífur, þurrkað kjöt og tilbúinn mat sem hægt er njóta á torginu eða taka með heim.
Eirný hjá ostaversluninni Búrinu mun sjá um markaðsstjórn en hún hefur mikla reynslu af markaðshaldi bæði hérlendis og erlendis. Vonast er til þess að um 12 söluaðilar verði á staðnum á hverjum laugardegi en hver markaðsdagur verður með mismunandi söluaðilum.
Umgjörð markaðsins verður litrík og skemmtileg og mun setja svip sinn á miðbæinn. Hugmyndin er að flutt verði lifandi tónlist alla markaðsdagana og það er hljómsveitin White Signal sem ríður á vaðið þann 6. júlí.
Ef einhverjir rekstraraðilar kynnu að hafa áhuga á að taka þátt í markaðnum er þeim bent á að hafa samband við, Hildi Gunnlaugsdóttur hjá umhverfis- og skipulagssviði, hildur.gunnlaugsdottir@reykjavik.is