Á morgun verður síðasti matarmarkaðurinn á Lækjartorgi þetta sumarið og þá verða jafnframt flestir söluaðilar hingað til. Það verður meðal annars hægt að kaupa nýjar kartöflur, ferskt grænmeti, blóm, birkisýróp, ljúffenga osta, kaffi og te, bakkelsi, brauð, hummus, ekta hamborgara úr grasfóðruðu nautakjöti, salt í öllum regnbogans litum, rammíslenskan harðfisk, gotterí, græna drykki og margt margt fleira. Tilvalið er að tylla sér niður á torginu með kræsingarnar og hlusta á lifandi tónlist en tveggja manna band, skipað Þorkeli Guðjónssyni og Jóni Ómari Árnasyni, spilar léttan djass fyrir markaðsgesti.
Lækjartorg hefur lifnað við alla laugardaga í júlí. Bændur og matvælaframleiðendur víða að hafa selt vörur sínar á matarmarkaði sem Reykjavíkurborg heldur utan um í samstarfi við Ljúfmetisverslunina Búrið. Markaðurinn hefur gefist vel og borgarbúar jafnt sem ferðamenn glaðst yfir stemningunni. Matarmarkaði má finna í flestum borgum Evrópu en er nýr af nálinni hér í Reykjavík. Eftirspurnin eftir innlendum matvörum vex og á markaðnum er mikið úrval af íslenskri gæðavöru.
Þess má geta að það er markmið í nýju aðalskipulagi að koma upp bændamarkaðsaðstöðu í öllum borgarhlutum svo það má búast við slíkir markaðir spretti upp víða um borgina á næstu árum. Matarmarkaðurinn á Lækjartorgi er vonandi bara smjörþefurinn af því sem koma skal í markaðsmenningu Reykjavíkur.
Markaðurinn er opinn frá 11 - 16 á morgun, laugardaginn 27. júlí.