Margvíslegar umbætur í Árbæ í kjölfar verkefnavals

Umhverfi Framkvæmdir

Áningarstaðir, bætt aðstaða fyrir gangandi, fleiri bekkir og bætt lýsing á göngustíg eru meðal þeirra verkefna sem íbúar í Árbæ völdu og komust til framkvæmda í tengslum við verkefnaval Betra hverfi í fyrra.  Íbúar sendu fyrst inn hugmyndir sem síðan var kosið um í opinni rafrænni kosningu.

Óskir íbúa í Árbænum beinast einkum að bættu umhverfi og útivistarmöguleikum. Óskaverkefnin sem unnin voru í Árbænum eru þessi:

  1. Bekkir og borð voru settir upp í Björnslundi og einnig var lagður þar stígur.
  2. Ruslastömpum var fjölgað í Norðlingaholti.
  3. Aðstaða til útivistar í Elliðaárdal var bætt með áningastöðum.
  4. Sparkvellir í hverfinu voru lagfærðir, mörk voru endurbætt og tyrft þar sem þörf var á.
  5. Ruslastömpum var fjölgað í Árbæ.
  6. Mannlíf á Árbæjartorgi var bætt með tímabundnu verkefni.
  7. Lýsing á göngustíg við Elliðaárvog meðfram Sævarhöfða var bætt með 6 ljósastaurum.
  8. Aðbúnaður fyrir gangandi var bættur með uppsetningu á 6 bekkjum á völdum stöðum í hverfinu. Einnig var komið fyrir ruslastampi og hellulagt undir bekkina.
  9. Útivistaraðstaða var sett upp í grenndarskógi við Ártúnsskóla.
  10. Tré voru gróðursett milli Höfðabakka og Hraunbæjar
  11. Leikskólarnir í hverfinu voru merktir betur.
  12. Gróðursett var í hljóðmanir við umferðaræðar í Norðlingaholti
  13. Áningarstaður var gerður við Árbæjarlaug.
  14. Settar voru upp merkingar í Elliðaárdal
  15. Áningarstaður í Elliðaárdal sunnan við Árbæjarskóla var útbúinn.
  16. Settur var upp vatnsbrunnur í Elliðaárdalnum við Árbæjarstífluna.



Verkefnum í fyrra var skipt í nýframkvæmdir annars vegar og viðhaldsverkefni hins vegar og þannig var haldið utan um þau í framkvæmdasjá. Sjá nánar um viðhaldsverkefni og nýframkvæmdir.



Heildarkostnaður framkvæmda við verkefni Betri hverfa í Árbæ er um 27 milljónir króna. Í ár verður einnig kallað eftir hugmyndum íbúa vegna verkefna og kosið milli þeirra ef þarf. Framkvæmdafé er óbreytt frá fyrra ári.