Mannréttindavika í Frostaskjóli

Unglingar í Hagaskóla, sem völdu félagsstarf sem hluta af valgrein, hafa verið að vinna hörðum höndum undanfarnar vikur að því að undirbúa mannréttindaviku sem nú stendur nú yfir. 

Í Frosta er því að finna mannréttindarkaffihús sem þau settu upp. Þar eru borðin merkt með umræðuhugmyndum á borð við frelsi, pyntingar, menntun, dauðarefsingu o.fl.. Einnig skartar salurinn myndum sem tengjast mannréttindum sem vert er að koma og skoða.

Mannréttindarlögin hafa verið sett upp á veggjum í og Frosta og vegfarendur í Vesturbæ gætu líka komið auga á slagorð sem skrifuð voru á svartan pappír og dreift um hverfið.

Í frístundaheimilunum í Vesturbæ fást börnin líka við margvísleg verkefni í mannréttindavikunni svo þau skilji hvað mannréttindi eru og hvers vegna þau eru mikilvæg. Meðal annars fá þau að reyna hvernig er að vera sviptur valfrelsinu, svo þau fái nasasjón af því hvernig það er að vera háður duttlungum einræðisherra eða að upplifa útilokun af einhverjum orsökum, líkt og gerist í löndum þar sem mannréttindi eru þverbrotin. Þá verða sagðar sannar sögur frá flótta þýskrar fjölskyldu sem flúði frá Austur-Þýskalandi og ófrelsi mannréttindabrota þar, en einn starfsmaður í Frostaskjóli er afabarn manns sem skipulagði þann flótta. 

Börnin taka þátt í ýmiss konar leikjum sem hafa að markmiði að hjálpa þeim að skilja hugtakið mannréttindi og er Compasito, kennsluefni frá Evrópusambandinu notað í því samhengi. Þá búa þau til fréttir og myndbönd um mannréttindi og mannréttindabrot og gefa í lok vikunnar út mannréttindafréttablað. Eins er boðið upp á leiklistargjörning þar sem börnin túlka réttindi og loks mun starfsmaður í húsi með tröppum og þröskuldum eyða heilum degi í starfinu í hjólastól til að allir átti sig á því hversu mikilvægt það er að sníða samfélag okkar og byggingar fyrir allt fólk og aðallir eigi kost á því að nýta sér þau tækifæri sem lífið hefur upp á að bjóða.

Sjá myndband sem nemendur í Frosta gerðu um mannréttindi