Málþing um innleiðingu grunnþáttanna lýðræðis, mannréttinda og jafnréttis
Félag heimspekikennara stendur fyrir málþingi í Réttarholtsskóla laugardaginn 13. apríl þar sem fjallað verður um innleiðingu grunnþátta í aðalnámskrá; lýðræðis, mannréttinda og jafnréttis. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur þingið sem hefst klukkan 13.00 og er öllum opið.
Dagskrá þingsins
- Elsa Björg Magnúsdóttir: Raunverulegt gildismat?
- Ingimar Waage: Viðhorf kennara til lýðræðis í grunnskólastarfi
- Jóhann Björnsson: Kennslustund í lýðræði eða lýðræðisleg kennslustund?
- Kristín Dýrfjörð: Er ekki bölvað vesen að tengja grunnþáttinn lýðræði öðrum grunnþáttum?
- Ólafur Páll Jónsson: Lýðræði og mannréttindi sem grunnþáttur: Viðmið, markmið eða aðferð?
- Sigurlaug Hreinsdóttir: Samhljómur lýðræðisins
Nánari upplýsingar má finna á vef Félags heimspekikennara, www.heimspekitorg.is.