Vikuna 6. til 10. maí verða hádegisumræður og kynningar á rannsóknum um málefni innflytjenda á Íslandi í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Dagskráin er í tilefni Fjölmenningardags Reykjavíkurborgar 11. maí og er hún á vegum Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur, fjölmenningarráðs Reykjavíkur, MIRRA (Miðstöð InnflytjendaRannsókna ReykjavíkurAkademíunni) og Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Dagskrá:
Mánudagur 6. maí kl. 12.00:
- Hanna Ragnarsdóttir – formaður Rannsóknarstofu í fjölmenningarfræðum. Menntavísindasvið Háskóla Íslands
- Helga Ólafsdóttir – doktorsnemi við HÍ – Af hverju rannsóknir?
- dr. Hallfríður Þórarinsdóttir – forstöðumaður MIRRA (Miðstöð Innflytjenda Rannsókna Reykjavíkur Akademíunni). Hvað hefur MIRRA verið að rannsaka?
- Guðrún Pétursdóttir – félagsfræðingur og framkvæmdastjóri InterCultural Iceland (2012) Um birtingamyndir dulinna fordóma og mismununar í garð innflytjenda á Íslandi
Miðvikudagur 8. maí kl. 12.00:
- Nichole Leigh Mosty (2013) - lokaverkefni til MA-gráðu. Where parental perspective, practice, and reasoning meet: the relevance of home language development for parents with bilingual preschool-aged children in Iceland
- Kriselle S. Cagatin (2013) – lokaverkefni til BA-gráðu. Establishing a Filipino mother tongue organization in Iceland
Föstudagur 10. maí kl. 12.00:
- Paola Cardenas (2012) – lokaverkefni til MA-gráðu í fjölskyldumeðferð – Intercultural Couples in Iceland.
- dr. Hallfríður Þórarinsdóttir og Anna Wojtynska doktorsnemi – Pólverjar á Reykjavíkursvæðinu: atvinnuþátttaka og atvinnuleysi.