Malbikun verður í eftirtöldum götum í dag ef veður leyfir, á Brekkugerði, í Vatnsholti og á Bræðraborgarstíg (frá Vesturgötu að Ránargötu).
Byrjað verður um klukkan 9 í Brekkugerði og verður götukaflanum lokað um það leyti.
Um hádegi verður farið í Vatnsholt og loks á Bræðraborgarstíg og götuköflunum lokað um leið og framkvæmdir hefjast.
Allt er þetta þó háð veðri og tíma. Athugið að lokað verður fyrir alla umferð á meðan á framkvæmdum stendur fram eftir degi. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitsemi þar sem framkvæmdir standa yfir.