Malbikað í dag á Háaleitisbraut

Framkvæmdir

""

Í dag er unnið við malbikun á eystri akrein Háaleitisbrautar, frá Listabraut að Hvassaleiti. Ekki hafði verið við því í gær að viðraði til malbikunar í dag en í ljósi betra veðurútlits var ákveðið að nota tækifærið og hófust framkvæmdir nú um níuleytið.

Götukaflinn lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur, en gert er ráð fyrir að opna hann aftur fljótlega eftir hádegi. Umferð á Háaleitsbraut frá norðri til suðurs raskast ekki vegna framkvæmdanna.

Vegfarendur eru hvattir nú sem endranær til að sýna aðgát og tillitssemi við framkvæmdasvæði.

Nánari upplýsingar:  Malbikunarframkvæmdir sumarsins.