Magnað myrkur, víkingar í Strætó, lita- og ljósasýning á Austurvelli
Mannlíf Menning og listir
Vetrarhátíð í Reykjavík hefst fimmtudaginn 7. febrúar með pompi og prakt á Austurvelli. Hátíðin sem stendur yfir frá fimmtudegi til sunnudags er fjölskylduskemmtun sem einkennist af sköpunargleði, hugkvæmni og listrænni tjáningu. Dagskráin er fjölbreytt og gefst borgarbúum og gestum tækifæri til að taka þátt í henni sér að kostnaðarlausu.
Opnunaratriði Vetrarhátíðar á Austurvelli er verkið „PIXEL CLOUD“ eftir Arkitektinn Marcos Zotes sem umbreytir Austurvelli í stórbrotna upplifun ljóss, lita og hreyfingar við tónlist frá „Cosmos“ sem er hugarfóstur Edda Egilssonar úr Steed Lord. Strax að lokinni sýningunni á verki Marcos Zotes verður boðið upp á tónleika á 10 stöðum í miðborginni þar sem boðið verður upp á jazz, kabaretttónlist, þungarokk og dægurlög. Það er því nóg um að vera í miðborginni á fimmtudagskvöld.
Safnanótt verður haldin föstudaginn 8. febrúar. Fjörtíu og eitt safn á öllu höfuðborgarsvæðinu mun bjóða uppá fjölbreytta dagskrá sem gestir á öllum aldri geta notið fram undir miðnætti. Víkingar Í fullum skrúða mæta í Landnámssafnið þeir munu líka koma í Strætó. Boðið verður upp á fjársjóðsleit í Sjóminjasafninu Víkinni og margt fleira. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til þess að njóta samvista við vini og fjölskyldu, heimsækja söfnin og upplifa skemmtilegar sýningar .
Á Sundlauganótt verður boðið uppá viðburði í Laugardalslaug, Vesturbæjarlaug, Breiðholtslaug og á Ylströndinni. Þar á meðal tekur fjöldi kóra sig saman og syngur hressileg lög í stúkunni við útilaugina í Laugardal. Norðurljósa sundlaugapartý verður í Vesturbæjarlaug verður án efa óvenjuleg upplifun þar sem litir og ljós njóta sín í myrkrinu.
Heimsdagur barna fer fram í Gerðubergi og Miðbergi. Á þessum degi eru fjölbreyttar listsmiðjur í báðum húsum auk þess sem líf og fjör er á torginu á milli húsana. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.
Hátíðinni líkur á Kærleikum Bergljótar Arnalds. Markmið Kærleikanna er að efla samkennd, hlýju og kærleika í samfélaginu. Vilborg Arna Gissurardóttir suðurpólsfari mun koma og segja nokkur orð. Eldgleypar verða á staðnum, Sóla sögukona, Leikhópurinn Perlan, Sönglist, Björgunarsveitirnar ásamt fjölda góðra gesta. Börnum verður boðin andlitsmálun í boði Andlitsmálunar Öldu Brynju. Hist verður fyrir framan styttu Jóns Sigurðssonar. Þaðan verður gengið í Kærleiksgöngu og mun Lúðrasveitin Svanurinn leiða gönguna. Einkennislitur Kærleikanna er
rauður og fá allir þeir sem vilja rauð hjörtu sem börn á frístundaheimilum hafa búið til.
Þetta er aðeins brotabrot af öllum þeim fjölbreyttu viðburðum sem í boði verða á Vetrarhátíð. Hægt er að sjá ítarlega dagskrá á www.vetrarhatid.is.