Magn í bláar tunnur tvöfaldast

Velferð Umhverfi

""

Bláum tunnum hefur stórfjölgað í Reykjavík á síðustu mánuðum. Nú er skylda að flokka pappír frá öðru rusli og skila til endurvinnslu í öllum hverfum borgarinnar. Borgarbúar hafa tekið þessari breytingu í sorphirðu í Reykjavík mjög vel.

Ef aprílmánuðir 2012 og 2013 eru bornir saman kemur í ljós að magn pappírs sem skilað er í bláu tunnuna hefur tvöfaldast. Það var 80 tonn í apríl 2012 en varð rúmlega 160 tonn í apríl 2013. „Þetta magn pappírs verður nú endurunnið í aðrar vörur í stað þess að taka pláss sem urðaður úrgangur. Allt sem fer í gráu tunnuna er urðað í Álfsnesi en urðun flokkast sem sóun á auðlindum,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.

Pappír, og efni sem fellur í ýmsa endurvinnsluflokka, er verðmætt efni sem ekki á að urða. Góð flokkun í heimahúsum skiptir því lykilmáli. Margir íbúar hafa hikað við að skila inn grárri tunnu í stað blárrar en það virðist nú vera að breytast. Bláu tunnurnar hafa sannað sig og eftir því sem flokkunin er betri minnkar magnið í gráu tunnunum og þá dregur úr urðun. Hægt er að fá tæplega þrjár bláar tunnur fyrir sama gjald og greitt er fyrir eina gráa.

Margir íbúar leita nú til Sorphirðu Reykjavíkur til að fá upplýsingar um hvað má fara í bláu tunnuna eins og bylgjupappír, dagblöð, fernur, skrifstofupappír og umbúðapappír en ítarlegar upplýsingar má að finna á vefsíðunni www.pappirerekkirusl.is.

 

Myndatexti: Þróunin í fjölda blárra tunna í Reykjavík. Þær voru um 3000 þegar átakið hófst og eru nú um 8000 talsins.