Mælingar sýna betri árangur og líðan

Starfsáætlun skóla- og frístundasviðs fyrir 2013 geymir ýmsar athyglisverðar staðreyndir um skólastarf í Reykjavík m.a. að líðan barna og unglinga er betri en áður. Þá kemur fram að fjöldi nemenda á stöðugildi umsjónarkennara hefur haldist nær óbreyttur frá árinu 2000.

Mælingar sem starfsáætlun byggir á sýna m.a.:

  • Að nemendur í 10. bekk í Reykjavík voru efstir á samræmdum könnunarprófum í íslensku, stærðfræði haustið 2012 og yfir landsmeðaltali. Nemendur í 7. bekk voru næst efstir í báðum greinum og nemendur í 4. bekk voru efstir í íslensku og næstefstir í stærðfræði.  Um 80% reykvískra skóla eru með framfarastuðul sem sýnir jafnar og góðar framfarir nemenda milli ára.  Læsisskimun í 2. bekk og stærðfræðiskimun í 3. bekk hafa sýnt betri niðurstöðu með hverju árinu.
  • Yfir 30 skólar í Reykjavík hafa tekið þátt í heildarmati á skólastarfi.  Vettvangsheimsóknir í kennslustundir hafa leitt í ljós að yfir 75% eru góðar eða frábærar. Þá er verið að meta nám og kennslu, hegðun nemenda, skipulag kennslu og hvernig tími er nýttur.
  • PISA 2009 niðurstöður í læsi, stærðfræði og náttúruvísindum fyrir Reykjavík komu betur út en árið 2006 eftir að skólayfirvöld og kennarar unnu saman að því að skoða kennsluaðferðir og námsefni fyrir unglingastig í þessum greinum. 
  • 90%  foreldra leikskólabarna segja markvisst unnið með félagsfærni barnsins í leikskólanum og 97% þeirra telja að barninu þeirra líði vel í leikskólanum.
  • Um 89% foreldra barna í frístundaheimilum og 90% foreldra unglinga í félagsmiðstöðvum telja að starfið hafi jákvæð áhrif á félagsfærni barns síns.
  • Yfir 90% unglinga á aldrinum 13-15 taka þátt í tómstundastarfi. Forvarnir í skólum og frístundastarfi hafa m.a. leitt til þess að neysla áfengis og vímuefna og reykingar hafa minnkað með hverju ári. 
  • Um 80% nemenda í 6.-10.bekk segjast alltaf gera sitt besta til að auka færni sína í námi.
  • Yfir 90% foreldra grunnskólabarna telja að þeim líði vel í skólanum og árlegar mælingar meðal nemenda sýna að kvíði, vanlíðan og einelti hefur minnkað.
  • Árið 2000 voru nemendur í Reykjavík 15.493 en voru haustið 2012 13.973 eða um 1.500 færri. Fjöldi nemenda á stöðugildi umsjónarkennara hefur haldist nær óbreytt á tímabilinu,  var 20,7 árið 2000 og var 20,9 haustið 2012. Kennurum hefur því fækkað í takti við fækkun nemenda.  Árið 1980 voru 22.8 nemendur á stöðugildi umsjónarkennara og árið 1990 voru þeir 21,4.





Starfsáætlun 2013 í flettiútgáfu