„Maður málar bara eins og manni sýnist“
Börn af leikskólanum Sæborg opnuðu í dag listsýningu á Kjarvalsstöðum í tilefni af Barnamenningarhátíð. Þar má sjá litskrúðug verk í tvívídd og þrívídd og skráningu á rannsóknum barnanna á listasöfnum og samvinnu þeirra við Daða Guðbjörnsson myndlistarmann.
Leikskólabörnin fjölmenntu á Kjarvalsstaði í dag, sungu fyrir foreldra sína og aðra ættingja og sýndu stolt afrakstur þessa verkefnis sem hefur verið í gangi í allan vetur. Sköpunarafl barnanna og tjáning birtist í dularfullum ljónum, beinagrindum, risastórum gaffli, tveggja metra hárri mömmu, lest sem bjargar dýrum og ræningjaskipi auk fleiri ævintýralegra verka. Verkin njóta sín vel á Kjarvalsstöðum innan um og í samspili við verk eldri listamanna eins og Daða Guðbjörnssonar sem á þar líka verk.
Sýningin stendur til 3. maí.
Sjá dagskrá Barnamenningarhátíðar á www.barnamenningarhatid.is