ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fer fram í Ráðhúsinu í dag
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar er í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, fimmtudaginn 21. mars kl. 16.30. Þar munu nemendur úr 7. bekkjum grunnskóla í Vesturbæ og Miðborg og Hlíðum lesa svipmyndir úr skádsögunni Benjamín dúfa eftir Friðrik Erlingsson auk ljóða eftir Þóru Jónsdóttur og að eigin vali.
Dómnefnd velur þrjá bestu upplesarana.Einnig koma fram á hátíðinni ungir hljóðfæraleikarar, Grandabandið undir stjórn Darra Mikaelssonar.
Áætlað er að athöfnin standi í rúmar tvær klukkustundir.