Loftgæði léleg vegna svifryks

Aska frá svæðinu í kringum Grímsvötn barst með snjókomu til höfuðborgarinnar í óveðrinu í síðustu viku. Líklegt er að hálftímagildi geti verið yfir mörkum af og til og að sólarhringsheilsuverndarmörkin fari yfir 50 míkrógrömm á rúmmetra í dag. Klukkan 13.00 í dag 11. mars, var hálftímagildi svifryks í mælistöðinni á Grensásvegi 90 míkrógrömm á rúmmetra.

Veðurskilyrði eru ástæða þess að svifryksgildi eru há núna en hægur vindur og lágt hitastig eru í borginni. Samkvæmt veðurspá má vænta þess að ástandið skáni þegar líður á morgundaginn en þá spá veðurfræðingar vætu á höfuðborgarsvæðinu.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.  Áhugasamir geta fylgst með styrk svifryks á vefmæli hér til hliða á heimasíðunni en hann sýnir styrkinn á mælistöðinni við Grensásveg. Heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.