Ljósmyndanámskeið í Bromoil ljósmyndatækni

Í upphafi 20 aldar var piktoríalismi geysivinsæll  og Bromoil og Transfer tæknin voru virtustu ljósmyndunaraðferðirnar að mati þeirra ljósmyndara í Norður Ameríku og Evrópu sem unnu með þessar aðferðir. Hann var álitinn vera fallegasta form listrænnar tjáningar.

Í dag eru stór gallerí og metnaðarfullir listaverkasafnarar  snögg til að verða sér út um gömul Bromoil og Transfer prent. Bromoil ljósmyndunaraðferðin er því ein af elstu ljósmyndunaraðferðunum og líklega sú sjaldgæfasta. 

 

David W. Lewis er einn af örfáum sérfræðingum í heiminum í dag sem hafa tileinkað sér þessar gömlu aðferðir. Hann er leiðandi á sínu sviði og hefur sýnt verk sín, gerð með Bromoil tækninni, víða um heim og lagt sitt af mörkum við að endurvekja gamlar ljósmyndunaraðferðir á borð við Bromoil með námskeiðahaldi í yfir þrjátíu ár.

 

Vegna mikillar eftirspurnar mun David Lewis koma til landsins í annað sinn til að halda ljósmyndanámskeið í Bromoil tækni vikuna 24. – 29. júní í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

 

Fimmtudaginn 27. júní mun David svo halda hádegisfyrirlestur um þetta viðfangsefni í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sem hefst kl. 12.10.