Ljóðaslamm Borgarbókasafns fékk viðurkenningu fyrir að efla áhuga ungs fólks á ljóða- og textagerð á íslensku.
Jórunn Sigurðardóttir, útvarpskona hjá Ríkisútvarpinu, hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, sem veitt voru á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember. Verðlaunin fékk hún fyrir framúrskarandi umfjöllun um íslenskar og erlendar bókmenntir undanfarin ár. Auk verðlaunanna voru veittar tvær viðurkenningar, Ljóðaslamm Borgarbókasafns fékk viðurkenningu fyrir að efla áhuga ungs fólks á ljóða- og textagerð á íslensku og Máltæknisetur fyrir að stuðla að því að hægt sé að nota íslensku í nútímasamskiptatækni.
Verðlaunin og viðurkenningarnar voru veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu þar sem Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, flutti ávarp.
Ljóðaslamm 2008
Ljóðaslamm Borgarbókasafnsins fór fyrst fram árið 2008 og er nú orðið einn af árlegum viðburðum Safnanætur í Reykjavík. Þessi litskrúðuga og líflega keppni er ætluð ungu fólki á aldrinum 15-25 ára og hvetur ekki aðeins til ljóða- og textasmíðar heldur einnig til skapandi flutnings á efninu. Hvert ár er ákveðið þema valið og á meðal þeirra hafa verið spenna, væmni, sjálfstæði og myrkur. Lögð er áhersla á ljóðaflutning sem sviðslist og miðað við að flytjandi eða flytjendur fari með ljóðið samhliða tónlist, myndlist eða leiklist. Eitt af skilyrðum keppninnar er að ljóðið sé á íslensku og hvetur hún því ungt fólk til frjórrar sköpunar á íslenskri tungu.
Sjá nánar um Ljóðaslammið á vefsíðunni www.ljodaslamm.is.
Þess má geta að skráning er hafin í Ljóðaslammið 2014, en það fer fram á Safnanótt, föstudaginn 7. febrúar 2014. Þemað verður að þessu sinni AF ÖLLU HJARTA.