Lestrarhátíðin 2013 í nafni Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO verður haldin í október. Markmið Lestrarhátíðar er að hvetja til lesturs, auka umræðu um bókmenntir og tungumál og síðast en ekki síst að vekja athygli á gildi orðlistar í menningaruppeldi og daglegu lífi. Þemað á Lestrarhátíð 2013 er borgarljóð og er titill hátíðarinnar í ár, Ljóð í leiðinni. Ætlunin er að lyfta fram borgarskáldunum og leyfa ljóðum þeirra að sjást og heyrast sem víðast í borginni, bæði í tali og tónum. Ljóðið mun hreiðra um sig í úthverfunum sem og í miðborginni og birtast á óvæntum stöðum þegar minnst varir. Það mun ferðast um í strætó og verður því í leiðinni fyrir okkur öll. Börn og ungmenni í skólum borgarinnar verða hvött til að spreyta sig á skapandi skrifum og nýta ljóðmálið til að segja frá borginni sinni og sínu nánasta umhverfi. Ljóð verða sungin og tónlist samin við ljóð. Lumar þú á bókmenntaviðburði? Lestrarhátíð er hugsuð sem grasrótarhátíð og því eru allir hvattir til að bjóða upp á viðburði eða dagskrá sem tengist þemanu hverju sinni. Dæmi um skemmtilegt verkefni sem spratt upp í tengslum við síðustu hátíð var verkefnið „Vesturbæjarlestur“ þar sem skólar í hverfinu, bókasafnið, verslanir og fleiri unnu saman og virkjuðu samfélagið með. Október mánuður orðlista og lesturs í Reykjavík Lestrarhátíð verður árviss viðburður og október verður því þekktur sem mánuður orðlistar og lesturs í Reykjavík. Fjölmargir aðilar sem gera Reykjavík að bókmenntaborg voru virkjaðir á fyrstu hátíðinni: skólar á öllum stigum, bókasöfn, bókaútgefendur, fjölmiðlar, rithöfundar og síðast en ekki síst lesendur. Útkoman var fjölbreytt og skemmtileg hátíð sem auðgaði borgarlífið allan mánuðinn. Samstarf við þessa aðila mun halda áfram í ár og er það von okkar að nýir samstarfsaðilar bætist í hópinn. Orðið er frjálst