Heiðar Kári Rannversson, listfræðingur og verkefnastjóri viðburða hjá Listasafni Reykjavíkur leiðir listaverkagöngu í fylgd listamannanna Guðjóns Ketilssonar og Sólveigar Aðalsteinsdóttur næstkomandi fimmtudag 4. júlí kl. 20.
Gangan hefst við Kjarvalsstaði þar sem rætt verður um verkið Viðsnúning, nýtt útilistaverk Guðjóns við Klambratún. Verkið byggir á formi sem vísar til húss og snýr þakið upp öðru megin en niður hinu megin. Viðsnúningur á í sérstöku samtali við umhverfið á Klambratúni og er unnið með það í huga að börn og fullorðnir geti nýtt það í leik og starfi.
Þaðan verður gengið að verki Sólveigar Aðalssteinsdóttur Streymi tímans sem var afhjúpað síðasta sumar í Öskjuhlíð. Verkið er nálægt þeim stað sem Vatnsberi Ásmundar Sveinssonar stóð á. Verk Sólveigar er óvenjulegt umhverfisverk og er unnið af alúð og virðingu fyrir náttúrunni. Það afhjúpar einstök hvalbök eða jökulsorfnar klappir, sem skjóta kryppunni upp úr möl og gróðurþekju eins og hvalir á sundi.
Gangan er liður í reglulegum kvöldgöngum sem menningarstofnanir Reykjavíkurborgar standa fyrir á fimmtudagskvöldum í sumar. Gangan tekur um klukkustund, en lagt er af stað frá Kjarvalsstöðum.
Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.