Listasafn Reykjavíkur býður til afmælishátíðar á Kjarvalsstöðum
Listasafn Reykjavíkur býður til afmælishátíðar á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 24. mars kl. 11 - 17 en þann dag eru 40 ár liðin frá opnun Kjarvalsstaða. Formleg hátíðarhöld hefjast kl. 14. Ókeypis aðgangur allan daginn.
Dagskrá:
Kl. 11.00 - 17.00
Smiðjan - Samverustund fyrir alla fjölskylduna í skapandi umhverfi.
Í smiðjunni verður boðið upp á skemmtilega leiki og verkefni sem unnin eru í tengslum við þær sýningar sem standa yfir á Kjarvalsstöðum.
Kl. 14.00
Formleg afmælisdagskrá Kjarvalsstaða.
Svanhildur Konráðsdóttir sviðstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar býður gesti velkomna og Jón Gnarr borgarstjóri flytur ávarp.
Kl. 14.30 - 15.00
Tónlist: Tríó Sunnu Gunnlaugs.
Tríó Sunnu Gunnlaugs leikur nokkur vel valin lög. Sunna Gunnlaugsdóttir hefur um árabil verið í röð okkar fremstu djasspíanóleikara en tríóið skipa auk hennar, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Tríóið var nýlega útnefnt Tónlistarhópur Reykjavíkur árið 2013.
Kl. 15.00 - 15.30
Byggingarlist: Leiðsögn um Kjarvalsstaði.
Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt leiðir gesti um húsið en arkitekt Kjarvalsstaða er Hannes Kr. Davíðsson.
Kl. 15.30 - 16.30
Saga: Hvernig varð hverfið til?
Minjasafn Reykjavíkur leiðir spjall um sögu Klambratúns og uppbyggingu hverfisins í kringum Kjarvalsstaði.
Kl. 16.00 - 16.30
Flæði: Á bak við tjöldin.
Leiðsögn starfsmanna um sýninguna þar sem skyggnst er á bak við tjöldin.
Kl. 16.30 - 17.00
Kjarval- Mynd af heild.
Leiðsögn um heildarverk Kjarvals á sýningunni Mynd af heild.