Listapappírssmiðjur fyrir börn

Reykjavíkurborg tekur þátt í Hönnunarmars m.a. með því að halda tvær listasmiðjur fyrir börn á aldrinum 6-12 ára og foreldra þeirra í Norræna húsinu. Laugardaginn 16. mars kl. 10.30 - 12.00 og kl. 14.00 - 15.30.

Smiðjurnar eru haldnar í tengslum við Hönnunarmars 2013 og átakið Pappír er ekki rusl sem Reykjavíkurborg stendur fyrir m.a. til að kynna Bláu tunnuna sem ætluð er fyrir endurvinnanlegan pappír, sem Sorpa sér um að koma í endurvinnslu.

Mjólkurfernur, eggjabakkar, pítsukassar og annar pappír geta átt sér allskyns framhaldslíf eftir að þau hafa lokið upprunalegu hlutverki sínu. Í listasmiðjunum tveimur verður unnið með þann fjölbreytta pappír sem fer í bláu tunnurnar og munu börnin búa til stóla undir handleiðslu þeirra Ínu Salóme Hallgrímsdóttur og Brynhildar Þorgeirsdóttur, myndlistarmanna og kennara við Myndlistaskólann í Reykjavík.

Þátttaka í smiðjunum er ókeypis en Reykjavíkurborg og Sorpa kosta verkefnið. Sorpa leggur einnig til efniviðinn og færir þátttakendum endurvinnslupoka að gjöf. Þátttakendur verða að skrá sig á nh@nordice.is eða með því að hringja á skrifstofu Norræna hússins í s.551 7090, fyrir föstudaginn 15. mars, en hámarksfjöldi þátttakanda eru 20 börn í hvorri smiðju.

Tengill

Pappír er ekki rusl.