Borgarráð samþykkti á fundi sínum 7. febrúar tillögu borgarstjóra þess efnis að hefja undirbúning við að koma upp líkamsræktarstöð við Breiðholtslaug.
Í greinargerð með tillögunni er m.a. vísað til fundar borgarráðs frá 26. júlí í fyrra þar sem samþykkt var tillaga um að auglýsa skyldi eftir samstarfsaðilum um uppbyggingu heilsuræktar á svæði Breiðholtslaugar við Austurberg, en engin líkamsræktarstöð er í Efra-Breiðholti. Slík uppbygging í tengslum við Breiðholtslaug hefur áður verið auglýst í kjallararými við Breiðholtslaug, svonefndum Undirheimum, en horfið var frá þeirri niðurstöðu þar sem húsnæðið þótti ekki henta.
Fyrir liggur álit umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar um að mögulega megi koma fyrir byggingu á einni hæð, vestan við hús Breiðholtslaugar fyrir líkamsræktaraðstöðu. Einnig gætu fleiri valkostir komið til greina varðandi staðsetningu líkamsræktarstöðvar við Breiðholtslaug.
Umhverfis- og skipulagssviði verður nú falið að undirbúa breytingu á deiliskipulagi við Breiðholtslaug vegna líkamsræktaraðstöðu. Jafnframt hefur íþrótta- og tómstundaráði verið falið að auglýsa eftir samstarfsaðilum í forvali um þetta verkefni.