Lestrarsprettur um alla ganga í Ártúnsskóla

Á hverju ári stendur bókasafn Ártúnsskóla fyrir lestrarátaki í skólanum, í formi lestrarspretts. Í ár stendur átakið; „stjörnulestur nemenda“  yfir í hálfan mánuð og fer fram dagana 21. janúar til 1. febrúar.

Einkenni átaksins í ár er stjarna og safna nemendur stjörnu með hverri lesinni bók og safna í sameiginlegt verk hvers bekkjar fyrir sig. Keppa svo yngri og eldri bekkir um flestar lesnar blaðsíður og fá bikar til varðveislu í ár. Bókaval er frjálst hjá yngstu og elstu nemendunum, en norrænum höfundum haldið að 3., 4. og 5. bekk. 

Samkvæmt nýrri aðalnámskrá eru sex grunnþættir lagðir til grundvallar öllu skólastarfi. Tveir þessara grunnþátta eru læsi og sköpun og eru þeir samþættir í lestrarsprettinum, með því að láta listsköpun auka vægi átaksins um leið og það verður sýnilegra og skemmtilegra.

Skólasafnið stóð fyrir sameiginlegri kennslustund á tímabilinu, þar sem yndislestur fór fram víðs vegar um skólann. Lestraráhugi er mikill hjá nemendum, sem láta enga stund fram hjá sér fara við að grípa í bók.