LESTRARHÁTÍÐ 2013 Í BÓKMENNTABORGINNI REYKJAVÍK
Ljóð í leiðinni
Fyrsta Lestrarhátíðin í nafni Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO var haldin í október 2012. Markmið Lestrarhátíðar er að hvetja til lesturs, auka umræðu um bókmenntir og tungumál og síðast en ekki síst að vekja athygli á gildi orðlistar í menningaruppeldi og daglegu lífi. Lestrarhátíð verður árviss viðburður og október verður því þekktur sem mánuður orðlistar og lesturs í Reykjavík.
Þemað á Lestrarhátíð 2013 er borgarljóð og er vinnutitill hátíðarinnar, Ljóð í leiðinni. Ætlunin er að lyfta fram borgarskáldunum og leyfa ljóðum þeirra að sjást og heyrast sem víðast í borginni, bæði í tali og tónum. Ljóðið mun hreiðra um sig í úthverfunum sem og í miðborginni og birtast á óvæntum stöðum. Það mun ferðast um í strætó og verður því í leiðinni og á leiðinni. Börn og ungmenni í skólum borgarinnar verða hvött til að spreyta sig á skapandi skrifum og nýta ljóðmálið til að segja frá borginni sinni og sínu nánasta umhverfi. Ljóð verða sungin og tónlist samin við ljóð.
Lestrarhátíð er hugsuð sem grasrótarhátíð og því eru allir hvattir til að bjóða upp á viðburði eða dagskrá sem tengist þemanu hverju sinni.
Fjölmargir aðilar sem gera Reykjavík að bókmenntaborg tóku þátt í fyrstu hátíðinni: skólar á öllum stigum, bókasöfn, bókaútgefendur, fjölmiðlar, rithöfundar og síðast en ekki síst lesendur. Útkoman var fjölbreytt og skemmtileg hátíð sem auðgaði borgarlífið allan mánuðinn og ætlunin er að halda því áfram.
Orðið er frjálst