Skóla- og frístundaráð hefur samþykkt læsisstefnu leikskóla „Lesið í leik“ en starfshópur sérfræðinga í málefnum leikskólabarna vann tillögu að læsisstefnu fyrir leikskóla borgarinnar. Í leikskólum er læsi notað í víðu samhengi um margvíslega færniþætti í námi barna og er í stefnunni hugað að því um leið og áhersla er lögð á vinnu með málörvun, ritmál, tjáningu og leik.
Í lögum um leikskóla (nr. 90/2008) segir: „Stuðla skal að því að nám fari fram í leik og skapandi starfi þar sem börn njóta fjölbreyttra uppeldiskosta“. Í aðalnámskrá leikskóla (2011) er læsi einn af grunnþáttunum en „læsi í leikskóla felur í sér þekkingu, leikni og hæfni barna til að lesa í umhverfi sitt og tjá upplifun sína, tilfinningar og skoðanir á fjölbreyttan hátt“. Bestur árangur næst þegar gott samstarf er á milli leikskóla og foreldra um nám barna. Auk samstarfs við foreldra er nauðsynlegt að flæði myndist milli skólastiga og að læsisstefna leikskóla og lestrarnám í grunnskóla fari saman.
Samkvæmt stefnunni er hlutverk leikskóla að gera áætlun um læsi sem byggir á stefnunni og aðalnámskrá fyrir leikskóla. Hlutverk fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar er að styðja leikskóla borgarinnar við gerð læsisáætlana og kalla eftir því að þeim sé skilað inn. Í heildarmati leikskóla verði hugað að því hvernig staðið sé að vinnu leikskóla með læsi og kallað eftir umbótum sé þess þörf. Stefnunni verður hrint í framkvæmd á næsta hausti en einnig mun sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs kynna hana skólastjórum grunnskóla til að stuðla að samfellu í námi reykvískra barna. Læsisstefna leikskólanna er enn ein fjöður í hatt faglegs starfs leikskóla borgarinnar.
Þess má að lokum geta að Læsisstefnan ,,Lesið í leik“ er tileinkuð Kolbrúnu Vigfúsdóttur, fyrrum þróunarfulltrúa á skóla- og frístundasviði. Kolbrún samdi þessar vísur í tilefni ráðstefnunnar „Læsi er meira en stafir og staut“ sem haldin var í febrúar 2012.
Lesa og skrifa list er góð
langar flesta að kunna
verða af því vísast fróð
og vinum mörgum unna
Fleira en stafi festa má
í földum hugans leynum
allt sem fagurt er að sjá
eins með okkur geymum
Litlum börnum leikur er
leiðin best til fræða
mörgu góðu safna sér
og saman um það ræða
Lesa bæði ljóð og lag
líka myndir gæða
fræði þau sér færa í hag
og frjálsleg saman ræða
Í leikskólanum læra má
lestur margra þátta
eigin skilning annars ráð
einnig leið til sátta
Læsi er meira en stafa staut
og stagl um forsetningar
Það er lífsins langa þraut
að læra um tilfinningar
Við skulum muna, muna vel
að margt er ungs manns gaman
ungum börnum unun er
að eiga leiki saman