Búið er að bæta leiksvæðið milli Barðavogs og Langholtsvegar.
Þetta er vinsælt leiksvæði fyrir börn og því vel til fundið að leggjast í endurbætur á því. Leiksvæðir er eitt þeirra verkefna sem var kosið af íbúum í Laugardal í rafrænum íbúakosningum 2012 vegna Betri hverfa og kostaði fimm milljónir. Einnig hefur verið sett upp mannlífstorg við Snekkjuvog og Langholtsveg.
Í nóvember verður opnað fyrir innsetningu á hugmyndum frá íbúum inn á vefinn Betri hverfi 2014 en til stendur að halda rafrænar íbúakosningar í mars 2014. Fylgist með og sendið endilega sem flestar hugmyndir fyrir hverfin ykkar. Með því verður borgin blómlegri.