Leiklistin blómstrar á frístundaheimilum í Breiðholti

Skóli og frístund

""

Fimm leikrit voru frumflutt á leiklistarhátíð frístundaheimilanna í Breiðholti föstudaginn 8. febrúar. Börnin, sem voru á aldrinum 7 - 9 ára sáu sjálf um handritsskrif, leikmuni og búninga og settu leikritin upp í Breiðholtsskóla.

Mikil eftirvænting ríkti í barnahópnum áður en sýningar hófust, enda höfðu börnin æft sig vel og voru mörg hver að taka sín fyrstu spor í leiklistinni.

Börnin fluttu leikritin Veitingastaðurinn, Prinsessan og vampíran, Mjallhvít og dvergarnir, Krakkagrín og Rauðhetta og úlfurinn. Hvert þeirra var um 10 mínútur að lengd. Mikið var lagt í ljósabúnað og hljóðkerfi til að hafa sýningarnar flottar. Salurinn í Breiðholtsskóla var þétt skipaður foreldrum og systkinum sem skemmtu sér vel.