Leiðindaskjóða er ný jólavættur Jólaborgarinnar Reykjavík

Mannlíf Menning og listir

""

Það var líf og fjör í Listasafni Reykjavíkur í morgun þegar nýr jólavættur var kynntur til sögunnar en það er hún Leiðindaskjóða. Hún birtist í morgun og var viðstödd þegar mynd af henni var varpað á vegg Hafnarhússins þar sem hún mun halda sig næstu vikurnar. Borgarstjóri tók á móti nýju jólavættinni í dag og ákváð að leggja öllum leiðindum í desember henni til heiðurs. 

Nýja jólavætturin er byggð á þjóðsögum Jóns Árnasonar og nafnaþulum um börn Grýlu. Leiðindaskjóða er ein af dætrum Grýlu og Bola sem var giftur Grýlu um tíma. Leiðindaskjóða er hins vegar allt annað en leiðinleg og þekkist á gríðarstórri skjóðu sem hún dröslar með sér og safnar í leiðindum, veseni og amstri sem safnast á meðal landsmanna, tekur með sér upp til fjalla og eyðir á viðeigandi hátt. 
 
Jólavættir Reykjavíkurborgar eru nú orðnar ellefu talsins og var Leiðindaskjóðu  vel tekið af öðrum fjölskyldumeðlimum í morgun eða þeim Grýlu, Leppalúða, Jólakettinum, Rauðhöfða og jólasveinunum. Jólavættirnar sem Gunnar Karlsson myndlistarmaður hefur teiknað byggja á hugmynd Hafsteins Júlíussonar um að tengja Jólaborgina Reykjavík við íslenska sagnahefð. 
 
Jólavættunum er ætlað að kynna sérstöðu Reykjavíkurborgar fyrir innlendum og erlendum gestum hennar.  Þær birtast nú ein af annarri á húsveggjum  víðsvegar um borgina þar sem þeim verður hampað. Samfara því fer af stað spennandi ratleikur ,, Leitin að jólavættunum“  sem byggist á að finna vættirnar og svara léttum og skemmtilegum spurningum um þær. Hægt er að nálgast ratleikinn á Höfuðborgarstofu, á söfnum borgarinnar, í  verslunum í miðbænum og á vefnum christmas.visitreykjavik.is.  Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann sem sigrar í leiknum. Hægt er að sjá allar jólavættirnar á einum stað í Listasafni Reykjavíkur-Hafnarhúsi.  
 
Jólaborgin Reykjavík hefur sjaldan verið eins spennandi, skrautleg, skemmtileg og full af viðburðum og í ár. Jólaborgin er afrakstur sameiginlegs átaks Reykjavíkurborgar og samstarfsaðila á höfuðborgarsvæðinu um að auka enn frekar jólastemninguna í borginni í desember.
 
Jólaborgin Reykjavík hefur fyrir löngu hlotið fastan sess í hugum og hjörtum landsmanna og eru erlendir gestir farnir að sækja landið heim til að upplifa töfra íslenskra jóla. Hróður borgarinnar hefur borist víða en bandaríski fjölmiðillinn CNN hefur tvisvar útnefnt Reykjavík sem eina af þremur eftirsóknaverðustu jólaborgum heims og og í ár er borgin tilnefnd sem  ein af tíu eftirsóknaverðustu vetraráfangastöðum í heimi.