Laukar, hnýði og fuglalíf í Grasagarðinum
Grasagarðurinn býður upp á spenndandi dagskrá fyrir áhugafólk um garðyrkju og fugla næstu daga.
Í Grasagarðinum hefur náðst góður árangur í ræktun lauk- og hnýðisplantna upp af fræi. Fimmtudaginn 2. maí kl. 20 fjalla Hjörtur Þorbjörnsson forstöðumaður og Jóhanna Þormar garðyrkjufræðingur um helstu aðferðir og vandamál sem upp geta komið við ræktunina.
Sunnudaginn 5. maí kl. 11 verður fjölskrúðugt fuglalífið skoðað á göngu um garðinn í samstarfi við Fuglaverndarfélag Íslands. Um leiðsögn sér Hannes Þór Hafsteinsson garðyrkjufræðingur og fuglaáhugamaður
Skemmtileg fræðsla sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Mæting er við aðalinngang garðsins og eru allir velkomnir.