Látum brosið ganga á Menningarnótt

Mannlíf Menning og listir

""

Opinn hljóðnemi fyrir 2-100+ ára í Borgarbókasafni á Menningarnótt.

Kanntu brandara eða skemmtilega sögu, hefurðu lent í einhverju fyndnu eða langar þig til að segja eitthvað sem getur kveikt bros eða hlátur? Fólk á aldrinum tveggja til hundrað ára og eldra er hvatt til að láta ljós sitt skína í aðalsafni Borgarbókasafns á Menningarnótt.

Hljóðneminn bíður eftir skemmtilegheitunum sem verða að vera örstutt svo allir komist að. María Pálsdóttir leikkona stýrir og hægt er að skrá sig hjá henni: majapals@hotmail.com – og svo er líka hægt að láta kylfu ráða kasti og mæta án þess að skrá sig.

Látum brosið ganga verður síðdegis á Menningarnótt 24. ágúst.