Lestrarátaki lauk í Klettaskóla í dag. Markmiðið er sígilt; að hvetja nemendur til þess að lesa sem mest og best bæði að inntaki sem umfangi.
Bókasafn skólans var vel nýtt og fjölmörg verkefni einstaklinga og hópa litu dagsins ljós. Má sjá afrakstur þessarar vinnu víða í skólanum, þar sem marglitir lestrarormar hlykkjast um veggi.
Að þessu sinni stóð átakið yfir í rúma viku og lauk með samkomu á sal, þar sem bekkir og einstakir nemendur stiguá stokk með ýmis atriði, söng, upplestur og fl. Myndin sýnir nemanda úr 7. bekk bæta einum lið á hala orms í miðrými skólans sem þýðir, að enn ein bók eða leshefti er að baki …. og ormurinn lengist og lengist!