Landupplýsingar hljóta virta viðurkenningu fyrir heildarlandupplýsingakerfi sem og sérlega góða upplýsingaþjónustu við almenning.
Esri, stærsti framleiðandi Landupplýsinga-hugbúnaðar í heiminum, heldur árlega 13-15.000 manna alþjóðlega notendaráðstefnu í San Diego í Kaliforníu. Á hverju ári eru veittar nokkrar viðurkenningar til verkefna sem skara framúr á sviði landupplýsinga (Special achievement in GIS). Í sumar fékk Reykjavíkurborg slíka viðurkenningu og tóku þeir Þórarinn J. Jóhannsson og Jörgen Þormóðsson á móti viðurkenningunni.
Aðal ástæðan fyrir viðurkenningunni er gott heildarlandupplýsingakerfi sem og sérlega góð upplýsingaþjónusta við almenning, eins og sjá má í Borgarvefsjá og Borgarvefsjár-smáforritinu (borgarvefsjár-app) fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.
Landupplýsingar hafa umsjón með öllum gagnagrunnum sem innihalda landtengdar upplýsingar og leggja aðaláherslu á að hafa réttar og lifandi upplýsingar, byggðar á traustum grunni. Öflun, viðhald, úrvinnsla og afgreiðsla landupplýsinga eru aðalverkefnin, en deildin ber einnig ábyrgð á stjórn og rekstri LUKR, mælingum og útgáfu mæliblaða.
Landupplýsingum er skipt í tvær deildir (mælingar og LUKR), en Landupplýsingakerfi Reykjavíkur (LUKR) er samstarfsverkefni Umhverfis- og skipulagssviðs, Orkuveitu Reykjavíkur og Mílu ehf.
Borgarvefsjá er vefþjónusta sem Landupplýsingar veita og er hún opin öllum. Hún veitir á einfaldan hátt grunnupplýsingar úr gögnum LUKR og auk þess ýmsan fróðleik af margvíslegu tagi sem fróðleiksfúsir notendur kunna að meta.
Helstu verkefni landupplýsinga eru:
Gerð og viðhald mæliblaða. Mælingar. Viðhald hnita- og hæðakerfis. Umsjón með staðgreini. Hnitsetning eldri lóða. Stjórn og rekstur LUKR. Uppbygging og viðhald gagnagrunna og tengitaflna LUKR. Umsjón með Borgarsjá, Borgarvefsjá og Skipulagssjá. Öflun loftmynda. Kortagerð. Skráning, úrvinnsla og afgreiðsla landupplýsinga. Uppfærsla á tölum svæðisskipulags.