Miðvikudaginn 20. febrúar kl 17.00 - 18.30 fer fram kynning sem verður haldin í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Kynnt verður tillaga að breytingu deiliskipulags fyrir Landsímareit í Kvosinni. Skipulagssvæðið afmarkast af Aðalstræti, Vallarstræti, Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti. Fundurinn er opinn öllum og við vonumst til að sjá sem flesta.
Í framhaldi af kynningarfundinum hefst hagsmunaðilakynning sem stendur frá og með 20. febrúar til og með 13. mars 2013. Tillagan mun verða til sýnis í Ráðhúsinu og í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, auk þess sem hún verður aðgengileg á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Athugasemdum/ábendingum er veitt móttaka á kynningartímanum, þeim verður ekki svarað skriflega heldur verða þær innlegg í áframhaldandi vinnu. Þær skal senda á netfangið skipulag@reykjavik.is.
Ath. frestur til að skila inn athugasemdum/ábendingum hefur verið framlengdur til 13. mars.