Á lokadegi lestrarhátíðar í Reykjavík, fimmtudaginn 31. október, verður blásið til málþings í Laugalækjarskóla fyrir starfsfólk leikskóla, grunnskóla, frístundamiðstöðva og skólahljómsveita. Þingið er helgað læsi og ber yfirskriftina Læsi í hólkvíðum skilningi.
Þar verða haldin fróðleg erindi um skapandi skrif, ljóðaorma, myndasögur, náttúrulæsi og margt fleira.
Meðal fyrirlesara er Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor við HÍ, Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og borgarlistamaður, Ragnheiður Eyjólfsdóttir, deildarstjóri barnastarfs í Kampi, Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur og Helena Óladóttir, verkefnisstjóri Náttúruskóla Reykjavíkur. Málþingsstjóri er Páll Valsson rithöfundur. Allt áhugafólk um börn og ungmenni er velkomið á málþingið sem hefst kl.14.00.