Kynningarfundur um aðalskipulag Reykjavíkur til ársins 2030

Sjálfbær, mannvæn og fjölbreytt Reykjavík árið 2030.

 

Reykjavíkurborg boðar til kynningarfundar um tillögu að nýju aðalskipulagi sem gilda mun til ársins 2030. Þar munu fulltrúar borgarinnar kynna meginatriði aðalskipulagsins og kalla eftir umræðu um tillöguna. Fundurinn verður haldinn í Tjarnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 30. maí klukkan 17.15.

Endurskoðun á aðalskipulaginu 2001 - 2024 hefur staðið yfir undanfarin ár og falist í margvíslegri greiningarvinnu, mati valkosta og samráði við íbúa og hagsmunaaðila. Vinnan er á lokastigi og stendur nú yfir kynningar- og umsóknarferli áður en borgaryfirvöld samþykkja tillöguna í auglýsingu samkvæmt skipulagslögum.

Borg fyrir fólk er leiðarvísirinn í nýju aðalskipulagi og tekur stefnumótunin mið af því. Í aðalskipulaginu er lögð sérstök áhersla á  hverfin og einstaka borgarhluta. Markmiðið er að hverfi borgarinnar verði sjálfbærari, mannvænni og fjölbreyttari þar sem allir félagshópar fá tækifæri til búsetu. Hvert hverfi hafi sinn kjarna svo dagleg verslun og þjónusta verði í sem mestri nálægð við íbúa.

Tillagan gerir ráð fyrir að 90% allra nýrra íbúða á tímabilinu rísi innan núverandi marka borgarinnar. Markmiðið er að skapa heildstæðari og þéttari borgarbyggð og nýta þar með betur land og fjárfestingar í gatna- og veitukerfum og þjónustustofnunum. Með þéttari byggð dregur almennt úr vegalengdum, samgöngukostnaði og umhverfisáhrifum samgangna. Verkefni næstu áratuga er að fullbyggja Borgina við Sundin og því er uppbyggingu nýrra hverfa í útjaðri slegið á frest.

Græna borgin er eitt af þemum nýs aðalskipulags og er gert ráð fyrir að 40% lands verði opin svæði innan þéttbýlis Reykjavíkur ætluð til útivistar, afþreyingar og leikja. Reykjavíkurborg hefur mikinn metnað til að verða grænni og vistvænni og þar gegna samgöngur mikilvægu hlutverki. Stefnt er að því að hlutdeild almenningssamgangna í ferðum til og frá vinnu vaxi úr 4% í 12% og hlutdeild gangandi og hjólandi vaxi úr 21% í 30%.

Reykjavík er Skapandi borg með öflugt og fjölbreytt atvinnulíf. Markmið aðalskipulagsins er að viðhalda fjölbreytni og styrk atvinnulífsins og skapa vaxtarskilyrði fyrir nýjar atvinnugreinar, einkum á sviði hátækni, grænnar orkunýtingar og menningar. Lögð er áhersla á að Reykjavík styrki hlutverk sitt sem höfuðborg landsins og verði forystuafl í vaxandi alþjóðlegri samkeppni um fyrirtæki, vinnuafl og ferðamenn.

Mikilvægt er fyrir borgarbúa að þekkja þær megináherslur sem birtast í aðalskipulaginu því þar má finna framtíðarsýn sem kemur öllum Reykvíkingum við. Allir eru velkomnir á íbúafundinn þar sem m.a. verður farið yfir meginmarkmið tillögunnar og helstu breytingar frá gildandi skipulagi og boðið upp á umræður og fyrirspurnir

 Aðalskipulag Reykjavíkur til ársins 2030.