Í nóvember er deildarstjórum og aðstoðarleikskólastjórum í leikskólum Reykjavíkurborgar boðið á kynningarfund um nýju læsisstefnuna Lesið í leik.
Gert er ráð fyrir að hver deildarstjóri/aðstoðarleikskólastjóri velji sér einn fund af fjórum og skrái þátttöku á á netfangið ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Allir fundirnir verða haldnir á 7. hæð á Höfðatorgi, Borgartúni 12 - 14.
1. fundur, þriðjudaginn 12. nóvember kl. 8:30 – 10:50
Lesið í leik, læsisstefna leikskóla, Fríða Bjarney Jónsdóttir, verkefnisstjóri SFS.
Læsi og leikur, Anna Magnea Hreinsdóttir, leikskólafulltrúi í Garðabæ.
Læsið mitt, Ásmundur Örnólfsson aðstoðarleikskólastjóri í Ægisborg.
Hópumræður.
2. fundur, fimmtudaginn 14. nóvember kl. 8:30 – 10:50
Lesið í leik, læsisstefna leikskóla. Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, þróunarfulltrúi SFS.
Ævintýri dagsins – Málið, lífið og leikurinn, Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor við HÍ.
„Ðað er opið á nitli tíu og tíu“ læsi og einingakubbar. Elva Önundardóttir, leikskólakennari í Brákarborg.
Hópumræður.
3. fundur, þriðjudaginn 19. nóvember kl. 8:30 – 10:50
Lesið í leik, læsisstefna leikskóla, Fríða Bjarney Jónsdóttir, verkefnisstjóri SFS
Grunnur læsis er lagður í leikskóla. Hvað þurfa leikskólakennarar að vita um málþroska íslenskra leikskólabarna og hlutverk hans í þróun læsis? Hrafnhildur Ragnarsdóttir, prófessor við HÍ.
„Fíllinn er svo litríkur“ Stella Marteinsdóttir og Guðný Sverrisdóttir,deildarstjórar á Hofi.
Hópumræður.
4. fundur, fimmtudaginn 21. nóvember kl. 8:30 – 10:50
Lesið í leik, læsisstefna leikskóla, Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, þróunarfulltrúi SFS.
Þroski, mál og læsi leikskólabarna: hlutverk í þróun náms, Freyja Birgisdóttir, lektor við HÍ.
Orð af orði, orðs ég leitaði. Læsistefna Reynisholts, Aðalheiður Stefánsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri.
Hópumræður.
Sjá læsisstefnuna Lesið í leik.