Kynning á nýjum lóðaskilmálum í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási

Framkvæmdir

""

Reykjavíkurborg verður með opna kynningu í Dalskóla í Úlfarsárdal í dag fimmtudaginn 20. júní kl. 15 – 19. Kynningin kemur í kjölfar ákvörðunar borgarráðs um að efna til sölu byggingarréttar í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási með nýjum skilyrðum. Horfið er frá sölu lóða á föstu verði með viðbótargjaldi en þær þess í stað boðnar út. Kaupendum byggingaréttar er boðið upp á staðgreiðsluafslátt eða afborgunarlaus lán fyrstu þrjú árin sem bera enga vexti  fyrsta hálfa árið.

Á kynningunni í dag gefst fólki kostur á að leggja spurningar fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar og einnig verða til reiðu yfirlitskort af Úlfarsárdal til að auðvelda fólki að ganga um hverfið og velja sér stað til framtíðarbúsetu.

Í boði eru 127 lóðir með byggingarrétti fyrir 271 íbúð. Með opnu tilboðsferli er jafnræðis gætt meðal þeirra sem áhuga hafa á lóðum í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási. Tilboðum þarf að skila í síðasta lagi 1. júlí.

Ný sundlaug og íþróttaaðstaða ásamt menningarstarfsemi

Framundan er mikil uppbygging þjónustumannvirkja fyrir Úlfarsárdal og Grafarholt. Byggja á nýjan skóla og nýja sundlaug fyrir almenning og skólasund. Sundlaug með útisvæði og heitum pottum verður opin almenningi en jafnframt verður lítil innilaug sem hentar til æfinga, kennslu og ungbarnasunds. Auk uppbyggingar á íþróttasvæði verður byggt nýtt íþróttahús til æfinga og keppni með áhorfendaaðstöðu. Í hönnunarsamkeppni um þessi mannvirki er einnig gert ráð fyrir rými fyrir menningarstarfsemi sem hluta af heildarþjónustunni með góðar tengingar við aðra starfsemi.

Nýir greiðsluskilmálar

Nýir greiðsluskilmálar fyrir lóðir í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási fela í sér að greitt er 10% staðfestingargjald og eftirstöðvar eru lánaðar til 8 ára, afborgunarlausar fyrstu 3 árin og án vaxta fyrsta hálfa árið. Verðtryggt veðskuldabréf ber  4,5% vexti, en óverðtryggt veðskuldabréf ber samsvarandi vexti og óverðtryggð lán hjá Seðlabanka Íslands. Veðskuldabréf eru gefin út á 1. veðrétt og er greitt af þeim einu sinni á ári. Í tilviki lögaðila er hámark á útgáfu veðskuldabréfs 80% af kaupverði byggingarréttar og greiðist í því tilviki að lágmarki 20% staðfestingargjald. Lóðir sem eru staðgreiddar fást hins vegar með 7% staðgreiðsluafslætti.

Hæstbjóðendur í lóðir verða að skila inn upplýsingum um fjárhagslega stöðu sína fjórum vikum eftir að tilboðsfrestur rennur út.  Einstaklingar þurfa að sýna  fram á greiðsluhæfi að upphæð 45 milljónir í einbýlishús, 40 milljónir í raðhús og 25 milljónir á íbúð í fjölbýli. Lögaðilar þurfa að sýna fram á jákvæða eiginfjárstöðu.

Tilboðsfrestur rennur út kl. 16:00 mánudaginn 1. júlí. Upplýsingar um tilboð verða sett á vef Reykjavíkurborgar daginn eftir. 

Allar upplýsingar um lóðasöluna er að finna á vefnum www.reykjavik.is/lodir. Þar er einnig að finna rafræn tilboðsblöð. Einnig verður Reykjavíkurborg með opna kynningu í Dalskóla í Úlfarsárdal fimmtudaginn 20. júní kl. 15 – 19. Þar gefst fólki kostur á að leggja spurningar fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar og einnig verða til reiðu yfirlitskort af Úlfarsárdal til að auðvelda fólki að ganga um hverfið og velja sér stað til framtíðarbúsetu.

Uppbygging í Úlfarsárdal

Eins og áður segir er 127 lóðir í boði með byggingarétti fyrir 271 íbúð í þessum tveimur hverfum við Úlfarsá.

Í Úlfarsárdal eru 86 lóðir með byggingarétti fyrir 218 íbúðir:

3 lóðir fyrir fjölbýlishús með samtals 72 íbúðir

10 lóðir fyrir raðhús með samtals 56 íbúðum

17 lóðir fyrir parhús með 34 íbúðum

56 lóðir fyrir einbýlishús

Á Reynisvatnsási býðst 41 lóð með byggingarétti fyrir 53 íbúðir:

2 lóðir fyrir raðhús með samtals 13 íbúðum

1 lóð fyrir parhús með 2 íbúðum

38 lóðir fyrir einbýlishús

Með byggingu á þeim lóðum sem nú eru boðnar út verða hverfin fullbyggð miðaða við núverandi áform. Hjá Reykjavíkurborg ríkir bjartsýni um gott gengi þess útboðs. Það hefur nú þegar færst aukinn kraftur í uppbyggingu í Úlfarsárdal því á þessu ári hefur þegar verið gengið frá sölu tveggja fjölbýlishúsalóða með byggingarrétti fyrir 96 íbúðir.

Sólrík byggð við áhugavert útivistarsvæði

Úlfarsárdalur er íbúðasvæði í sólríkum suðurhlíðum Úlfarsfells. Meðal kosta við búsetu í Úlfarsárdal og Reynisvatnsási er sterk tenging við náttúruna, en fellið, áin og dalurinn mynda einstakan ramma um svæðið. Útsýni er til suðurs yfir Reykjavík og á haf út.

Nýtt aðalskipulag gerir ráð fyrir að Úlfarsárdalur verði eitt skólahverfi með 1.000 – 1.400 íbúðum.  Sameiginlegur vinnuhópur íbúa og Reykjavíkurborgar hefur sett fram hugmyndir um samþættan leik- og grunnskóla ásamt frístund fyrir yngri börn. Félagsstarf eldri nemenda verður í einni stofnun.  Þessi vinna leggur grunn að hönnunarsamkeppni fyrir nýjan skóla. Í dag er skólastarf í Dalskóla.

Allar upplýsingar um lóðasöluna er að finna á vefnum www.reykjavik.is/lodir.