Hin margrómaða Safnanótt hefst í kvöld, föstudaginn 8. febrúar klukkan 19.00 og stendur yfir til miðnættis. Aldrei hefur slíkur fjöldi safna tilkynnt þátttöku eða 41 safn á öllu höfuðborgarsvæðinu, en öll verða þau með fjölbreytta og spennandi dagskrá í boði sem ber yfirskriftina Magnað Myrkur.
Dagskráin felur m.a. í sér: Geimþrá í Ásmundasafni, sjóræningja og stjörnuskoðun í Sjóminjasafninu, rökkurleiðsögn á Árbæjarsafni, leikbrúðuóperu í Gerðarsafni, smástundasafnið á Landnámssýningunni, nútímadraugasögur í Borgarskjalasafni, stafarugl í Grafíksafninu, Innlit í Glit í Hönnunarsafni Íslands, Matrix gjörning í Pakkhúsinu, þjóðlagapoppbræðing í húsi skáldsins að Gljúfrasteini, ísskúlptúragerð í Grasagarðinum, morðgátu í Þjóðminjasafninu og svo lengi mætti telja.
Það er ekki aðeins frítt inn á öll söfnin heldur mun sérstakur Safnanæturstrætó einnig sjá um að flytja gesti frítt á milli borgarhluta og sveitafélaga.
Með því að heimsækja aðeins þrjú söfn geta gestir tekið þátt í Safnanæturleiknum og unnið ferð fyrir tvo til Amsterdam í boði Icelandair og aðgang að vinsælasta samtímasafni borgarinnar, Stedelijk Museum.